27.1.2009 | 16:41
Hvað kemur kynhneigð embætti forsætisráðherra við?
Liggja einhverjar annarlegar hvatir á bak við að draga það fram í dagsljósið að Jóhanna sé samkynhneigð? Getur verið að þetta séu lævís meðöl lúsersins sem sættir sig ekki við að halda ekki lengur þjóðinni í greipum heljar? Er verið að gera lítið úr persónu hennar og hæfileikum? Nú er ég ekkert viss um að Jóhanna valdi þessu starfi þó traust sé og samkvæm sjálfri sér. En það verður þá ekki vegna kynhneigðar hennar.
Jóhanna vekur athygli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Greinar
Mikilvægar færslur
- Mamma, við skulum bara skila kjúklingnum!
- Andra Snæ Magnason sem forsætisráðherra!
- Lækjarsprænan Þjórsá og vald Landsvirkjunar Umhverfismatið skoðað
- Lækurinn Þjórsá - Um kunnáttu þrastarins í japanskri Kamakazi hernaðarflugtækni Upplifun okkar
- Ef að stjórnmálamennirnir okkar geta ekki haft vit fyrir þjóðinni þarf þjóðin að hafa vit fyrir þeim!
Athyglisvert
Síður sem mér finnst áhugaverðar
- Nýtt lýðveldi
- Borgarafundur
- Nýir tímar
- Takk Færeyingar!
- Þjórsá.com Um virkjanaframkvæmdir Landsvirkjunar í neðri hluta Þjórsár
- Amnesty Íslandi
- Ísraels mannréttindasamtök á herteknu svæðum Palestínu
- Náttúruvaktin
- Náttúran.is
- Landvernd
- Umhverfisstofnun
- Náttúruverndarsamtök Íslands
- Vinir Íslands
- Savingiceland.org/
- Sól í Straumi
- Sól á Suðurnesjum
- Myndir frá Kárahnjúkum
- http://www.hugmyndaflug.is/forum/
- Horfin náttúra Kárahnjúkar
- Myndband frá vinum Íslands
Nýjustu færslur
- Draumurinn um Ísland
- Nýju föt keisarans og maðkétna mjölið
- Hvers vegna segi ég nei við Icesave samningnum?
- Sauðfé, fésauðir og vestfirsk villidýr.
- Norrænt helferðareinelti.
- Stríðið er byrjað!
- Ónýta landið - ónýta liðið.
- Hvenær finnst ÞÉR nóg komið?
- Steingrímur fjármálastjóri í sláturhúsi frjálshyggjunnar.
- Gleymdirðu að segja: Nei djók, Steingrímur
Færsluflokkar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- reykur
- tharfagreinir
- palmig
- ingibjorgelsa
- einherji
- haukurn
- jensgud
- hafstein
- svenni
- siggisig
- toshiki
- dofri
- valgerdurhalldorsdottir
- ingimar
- almal
- havagogn
- andreaolafs
- kolgrimur
- mosi
- bibb
- bjarnihardar
- olinathorv
- solir
- grazyna
- ragnaro
- hognihilm64
- ottarfelix
- lehamzdr
- paul
- svansson
- birgitta
- begga
- photo
- asarich
- gullvagninn
- helgigunnars
- safi
- baldurkr
- magnusthor
- malacai
- asthildurcesil
- bergthora
- biggijoakims
- brjann
- gattin
- brandarar
- fridaeyland
- gerdurpalma112
- lucas
- skulablogg
- maeglika
- klaki
- skessa
- heimssyn
- hildurhelgas
- himmalingur
- gorgeir
- hlynurh
- minos
- daliaa
- isleifur
- kreppan
- fun
- jenfo
- jogamagg
- jax
- jon-o-vilhjalmsson
- askja
- reisubokkristinar
- larahanna
- marinogn
- mal214
- manisvans
- omarragnarsson
- pallheha
- ragnar73
- raksig
- lovelikeblood
- sigrunzanz
- duddi9
- siggi-hrellir
- sigurjonsigurdsson
- stebbifr
- must
- saethorhelgi
- torfusamtokin
- tryggvigunnarhansen
- kreppuvaktin
- belladis
- vefritid
- vesteinngauti
- vga
- tibet
- steinibriem
- thj41
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 1684
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Innskráning
Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.
Athugasemdir
Góð spurning.
Magnús Sigurðsson, 27.1.2009 kl. 16:44
Heill og sæll; Ævar Rafn !
Tek undir; með þér. Þókt svo; ég sé ærið tortryggin, á þessa framvindu, verði þessi stjórn kratanna (Samfylkingarinnar), og Lenín eftirhermanna (Vinstri hreyfingarinnar - Græns framnoðs), að veruleika, að þá eru það persónulegir eiginleikar, sem hæfni og veglyndi, sem máli skipta, í fari fólks - ekki kynhneigð þess.
Fordómar ýmissa óþokka; hverjir lifað hafa, í aldanna rás, hugði ég, að baki vera, núna; eftir byrjun 21. aldarinnar. Því virðist fara; svo víðs fjarri, því miður - sjáum samt, hvað setur, með enn meiri upplýsingu, komandi tíma.
Með beztu kveðjum /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 16:51
Ekki hafði ég heyrt af samkynhneigð Jóhönnu en finnst það óneitanlega athyglisvert ef við fáum fyrsta samkynhneigða forsætisráðherra lands algerlega án þess að samkynhneigð hennar hafi verið atriði á neinum tímapunkti. Það fer varla að verða það allt í einu. Við höfum nú þekkt hana áratugum saman gegnum sjónvarpið. Hugsa ekki að það hafi legið neinar ananrlegar kvatir þar á bakvið og ef svo er að þá hugsa ég ekki að það muni hafa nein áhrif.
Héðinn Björnsson, 27.1.2009 kl. 17:07
Tek undir þetta með þér. Skiptir einhverju máli í nútímasamfélagi hver kynhneigð fólks er?
Jóhanna er enginn engill í mannsmynd eins og sumir hafa líst henni, en hún má eiga það skuldlaust að hún er eini ráðherran í síðustu ríkisstjórn sem brást við kreppunni á réttan hátt.
Diesel, 27.1.2009 kl. 17:19
Sammála þér Ævar. Við getum haft margvíslegar skoðanir á Jóhönnu sem stjórnmálamanni en kynhneigð hennar kemur færni hennar á því sviði ekki á nokkurn hátt við. Ég sé heldur alls ekkert athugavert við það að Ísland veki athygli út á við fyrir það að eiga fyrsta samkynhneigða forsætisráðherrann en finnst það mekrilegt að það skuli vera gert að einhverju aðalatriði.
Rakel Sigurgeirsdóttir, 27.1.2009 kl. 17:27
Skiftir ekki máli, Jóhanna er ein af þeim persónum sem ég myndi alveg kjósa (ef ég gæti kosið persónur en ekki flokka). Það voru samt samtök samkynhneygðra sem drógu þennan punkt inn í umræðuna, ef mér skjátlast ekki, og mér finnst það óviðeigandi þó þau séu stolt af Jóhönnu.
Gullvagninn (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 17:49
Er þetta ekki bara flott!
Jóhanna og Hörður - samkynhneigða byltingin!
Guðbjörn Guðbjörnsson, 27.1.2009 kl. 18:24
Sjaldnast læt ég mig það nokkru varða hvað annað fólk aðhefst innan sinn svefnherbergisveggja. Set ekki kynhneygð efst á listann ef að skilgreina á einstaklinga.
Skil þó vel að samkynhneygðir skuli vera stóltir af fólki á borð við Hörð og Jóhönnu.
"They´ve come a long way"
Hildur Helga Sigurðardóttir, 27.1.2009 kl. 20:30
Ekkert frekar en útlit litarháttur eða annað það er verið að reyna að kasta rýrð á manneskjuna en hún er sterk og þolir það vel
Jón Ólafur Vilhjálmsson, 27.1.2009 kl. 22:39
Af hverju er það óviðeigandi að benda á þessa sögulegu staðreynd? Af hverju talar fólk sem þykist vera fordómalaust um það að þetta sé dregið fram í dagsljósið til þess að vera Jóhönnu til minnkunar??? Það skyldi þó ekki vera að grynnra sé á fordómum sumra yfirborðskenndra jafnréttissinna en ætla mætti?
Margir virðast ekki skilja að þessi tíðindi gætu vakið upp vonarglætu hjá milljónum samkynhneigðra ungmenna út um allan heim sem fram til þessa hafa aldrei gert sér vonir um að ná frama í stjórnmálum - sökum kynhneigðar sinnar.
Reynið að hugsa út fyrir landssteinana einu sinni for crying out loud!
Róbert Björnsson, 27.1.2009 kl. 23:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.