Þetta er mitt eina ákall...........

Ég ætla ekki að segja fólki hvað mér finnst að það eigi að kjósa. En ég sé mig samt knúinn til að segja hvaða flokk enginn á að kjósa. Kjóstu Samfylkinguna, Sjálfstæðisflokkinn, Íslandshreyfinguna, Frjálslyndaflokkinn eða Vinstri græna. Bara ekki kjósa siðspillingarbælið Framsókn. Þessi flokkur hefur ekkert með pólitík að gera. Þetta er bara spillingarbæli sem starfar fyrir þröngan hóp eigenda flokksins þá sömu og eru S-hópurinn, eiga VÍS, Exista, Kaupþing og fleiri félög. Leyfar af gamla sambandinu. Rotin valdsjúk krumla sem hefur sýkt íslenskt þjóðfélag of lengi.

Tölvan segir nei........

Frá því í fornöld eða 1985 hef ég haldið mig við rándýrar Steve Jobs tölvur allt til dagsins í dag. Það kostaði mig 1988 360 þúsund þá (vill ekki framreikna) lítill tölvukubbur með 512k minni og möguleikanum á 1400 k í viðbót ásamt nálaprentara. Síðan hef ég keypt 6 eða 7 makka í viðbót. Aldrei átt Bill Gates tölvu. Fyrr en ég ætlaði að blogga. Tölvan sagði nei. Mogginn sagði nei.Þannig að ég fékk son minn til að setja saman fyrir mig tölvu. Keypti kassa og eitthvað sem hann sagði að vantaði. Restin er vesælir afgangar frá honum. Síðan 1985 hef ég einu sinni lent í því að fá vírus inn á Makkana mína. Leysti það og hef bara verið brattur með þetta. En eftir að ég byrjaði að blogga hef ég þurft að hringja í strákinn annan hvern dag og spyrja: "Hvernig leysi ég þetta?" Ég er sannfærður um að þetta sé illa innrættum framsóknarmönnum með tölvukunnáttu um að kenna. Þeir eru allavega mjög sárir út í mig. Einhverja hluta vegna.

Enn er penninn á lofti - rétt fyrir kosningar.

Ég gleðst svo sannarlega fyrir hönd Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. En korter í kosningar með myndum af sér í blöðunum er Guðni  eins og öll hans flokkssystkyni komin í örvæntingarfullt kapphlaup um að geta verið áfram við kjötkatlana. 

Að lokum vil ég mælast til þess að Framsóknarflokkurinn verði lagður til hinstu hvílu. Það er fyrir löngu orðin ólykt af hræinu.


mbl.is Samið um reiðhöll í Hrunamannahreppi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

(Brj)Álæði áfram - ekkert stopp

 
EKKERT STOPP!!!

 

GRÆNU KARLARNIR

Korter í kosningar og penninn á lofti

Þetta er bara hallærislegt hvernig Framsókn treystir á heimska og skoðanalausa fylgið með því að vera nógu mikið í fréttum. Siv er búin að skrifa upp á milljarð sem næsta ríkisstjórn á að reiða fram. Nú er Jónína að gera það sama. Er ekki kominn tími til að leggja þetta spillingarbæli niður?

mbl.is Jörðin Hraun í Öxnadal friðlýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsvirkjun eyðir sönnunargögnum!

Í kjölfar kæru á hendur Ómari Ragnarssyni fyrir að hafa smíðað sér flugvöll við Kárahnjúka gleymist að við rannsókn þessa máls sem gæti tekið töluverðan tíma er stór hætta á því að Landsvirkjun verði sek um að spilla eða eyða sönnunargögnum sem gætu stuðlað að því að fá Ómar Ragnarsson dæmdan sem umhverfishryðjuverkamann.

Því er það mín krafa sem unnanda réttlætis og réttarkerfisins íslenska að tappinn verði tekinn úr Kárahnjúkavirkjun þannig að umræddur flugvöllur fari ekki undir vatn og spilli þannig rannsókn málsins.

Réttast væri að farið yrði fram á lögbann á þessum gerðum meðan rannsókn stendur yfir!

Það hlýtur að vera skýlaus krafa að Landsvirkjun stöðvi strax frekari rennsli í Hálslón meðan þetta mál velkist í réttarkerfinu. Að öðrum kosti er ljóst að Landsvirkjun verður sek um að spilla sönnunargögnum og hafa áhrif á störf íslenska dómskerfisins. 


Frasasmiðja Framsóknar.....

Viðfangsefni sem stefna ber á markvissan hátt að að leysa, heildaráætlun um samfellda rammaáætlun um heildræn og skilvirk markmið sem stuðli að aukinni framsetningu skýrrar stefnu ríkisstjórnar velfarnaðar og jafnaðar útfrá samfellu og samfylgni þar sem lögð er mjög þung og ég endurtek mjög þung áhersla á að náist marktækir áfangar án öfga beggja vængja stjórnmálanna sem skapar farsæla landsstjórn.

Fyrir þessu stendur Framsóknarflokkurinn vörð og er í fararbrjósti þar sem ferskir vindar blása með gagnsærri og markmiðaðri heildrænni stjórnsýslu.

Í jafnréttismálum hafa Framsóknarmenn stuðlað að veruleikamiðaðri jafnlaunavottun sem byggir á grunni hugsjóna samvinnustefnunnar án sértækra úrræða vinstri aflanna.

Með opnum huga og á yfirvegaðan hátt erum við afl á miðjunni sem gætir þess að netlögguhugmynd Steingríms J. verði ekki að veruleika, komist stopp-flokkur hans í ríkisstjórn

Við höfnum handbremsustoppi – áfram gakk okkarspillingarveg án alls hiks.

 

Spurningin er - hver er maðurinn? 


Þarna urðum við af milljarðaauglýsingu!

Það er greinilegt að það er bara ál í kollinum á þeim sem stjórna í dag. Þetta hefði verið frábær landkynning en snerist upp í andhverfu sína með framkomu ráðamanna. Svei þeim!

mbl.is Hætt við Live Earthtónleika í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er aumasta aðför sem ég hef upplifað!

 Já, aumt er það þegar gripið er til þessara vopna og deig held ég að þau dæmist. Eftir skrípamynd Framsóknar af frænda mínum úr Þistilfirðinum á maður von á öllu en þetta kom í bakið. Að menn geti ekki sýnt baráttu Ómars virðingu án svona lagaðs (neðanbeltis er of huggulegt) sýnir bara daunillt innræti viðkomandi. Það illalyktandi og rotið að ódaunninn leggur viðkomandi sjálfan af velli.

 Þessi árás á Omar Ragnarsson sýnir taugaveiklun stjórnarflokkanna og hversu lágt þeir eru tilbúnir til að leggjast fyrir áframhaldandi faðmlag.

"Engum hefur flogið í hug umhverfisspjöll fyrr en nú, fjórum dögum fyrir kosningar.

STÓRA FLUGVALLAMÁLIÐ.

Í dag hefur verið fjallað þvívegis í sjónvarpi um lendingarstaði mína á Kárahnjúkasvæðinu, fyrst tvívegis á Stöð tvö og síðan í Kastjósþætti um umhverfismál og látið að því liggja að um umhverfishneyksli sé að ræða. Lítum á þetta stóra flugvallamál í heild. 

Lendingarstaðirnir sem um ræðir eru allir svipaðir lendingarstöðum Flugmálastjórnar á hálendinu, þannig, að þeir eru náttúrugerðir, þ.e. sléttir melar. Til þess að flugvélar spori ekki í þá og eigi auðveldara um flugtak, eru þeir valtaðir á hverju sumri. Eftir frostlyftingu vetrarins eru þeir síðan eins útlítandi og þeir væru ósnortnir og þá þarf að valta þá að nýju."

http://omarragnarsson.blog.is/blog/omarragnarsson/entry/203367/#comments 

 


Ég á að skammast mín!

fesEitthvað er ég að pirra Framsóknarmenn með skrifum mínum. Ég er sakaður um að vera ómálefnalegur, rökstuðning vanti við það sem ég segi, ég sýni ekki sanngirni gagnvart öllu því góða sem Framsókn hefur afrekað og svo mætti lengi telja. Eiginlega ætti ég bara að skammast mín!

Og þar sem ég er svona ljúfur og réttsýnn drengur ákvað ég að staldra við og velta fyrir mér hvort ég væri að vega ómaklega að þessum yfir 90 ára gömlum stjórnmálaflokki.

90 ára gömlum! Þarna liggur nefnilega hundurinn grafinn. Samvinnuhreyfingin, kaupfélögin og Framsóknarflokkurinn VORU með merkilegustu fyrirbærum fyrri parts síðustu aldar. En þau VORU það!

Það er engin hugsjón, hvorki samvinnuhugsjónin né nein önnur í dag á bak við þennan flokk en hugsjónin um völd. Að viðhalda járnkló sinni sem þeir hafa haft á íslenska embættiskerfið með helmingaskiptareglunni þar sem annar hver seðlabankastjóri kemur frá Framsókn, annar hver sýslumaður, annar hver dómari, stjórnarformaður Landsvirkjunar á móti sjálfstæðismanni í forstjórastól. Svona mætti lengi telja og ef ég hefði nennuna til þess gæti ég grafið upp mörg dæmi um þetta fyrirkomulag. Bara ef ég tæki mig til og færi í gegnum hverjir kosningastjórar þeirra hafa verið í síðastliðnum kosningum og hvaða embættum þeir gegni núna eða hvaða jarðir þeir hafa keypt af ríkinu hefði ég efni í ritgerð. MJÖG þykka ritgerð!

Gleggsta dæmið um starfshætti Framsóknar er 6.3% maðurinn sem ríkir yfir Reykjavík þó borgarstjórinn komi frá sjálfstæðisflokknum.

Ég er búinn að taka þá ákvörðun að halda áfram að skammast mín fyrir það sem ég á að skammast mín fyrir  en skrif mín um Framsókn eru ekki í þeim stóra pakka. 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband