Mannskrattinn er fasisti!

The Smiths gáfu út plötu sem bar heitið Meat is murder. Þá voru Morrissey og félagar í uppáhaldi hjá mér.  En að heyra það að kallinn sé svona mikill fasisti gagnvart umhverfinu fær mig til að missa alla löngun á að hlusta á hann jarma framar. Ég get virt skoðanir annarra á kjötáti en ætlast til að fá að hafa mína blóðugu steik í friði fyrir gráguggna fölleita fólkinu sem svífur um eins og heilsuveilar blómkálslitaðar vofur.

morrissey.jpg


mbl.is Vill ekki sjá kjöt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Meira að segja Hitler, sem var gallhörð grænmetisæta, var ekki svona harður í horn að taka...

Ingvar Valgeirsson, 28.3.2009 kl. 16:11

2 Smámynd: Halldór K Kjartansson

Mæltu heill frændi

Halldór K Kjartansson, 29.3.2009 kl. 00:30

3 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Ég hætti að hlusta á The Smiths sjálfur eftir að ég komst að því hverjar skoðanir Morissey voru á innflytjendum og fjölmenningarsamfélagi. Þennan mann ætti enginn að styðja.

Hilmar Gunnlaugsson, 29.3.2009 kl. 00:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband