Efnahagslíf - hvernig skilja 11 ára gömul börn efnahagslíf.

Óli er 11 ára og stundar nám sitt vel í skólanum. Einn daginn spyr kennarinn nemendur sína hvort þeir vita hvað efnahagslíf er.
Nemendurnir vissu það ekki en kennarinn sagði þeim að reyna við spurninguna og þau mættu fá aðstoð heima og svara  spurningunni næsta dag.
Óli vellti þessu mikið fyrir sér en að lokum ákvað hann að spyrja pabba sinn. Pabbinn svaraði  Óli minn - Ég er auðvaldið af því að ég á alla peninganna, Mamma þín er ríkisstjórnin því að hún ræður öllu, Sigga vinnukona er alþýðan af því að hún þrífur hjá okkur, þú Óli minn er æskan og hann Palli eins árs gamli bróðir þinn er framtíðin.
Óli skildi þetta ekki alveg en um kvöldið þegar hann fór að sofa var hann mjög hugsi hvernig efnahagslíf virkilega virkaði. Hann vaknaði um nóttina við það að Palli litli bróðir var hágrátandi og fór inn til hans og sá þá að hann var búin að skíta upp á bak. Hann fór inn til mömmu sinnar og reyndi að vekja hana en hún svaf og hraut svo mikið að henni var ekki haggað og pabbinn var ekki í rúminu. Óli fór að athuga hvar pabbi hans væri og fann hann inn í eldhúsi að ríða Siggu vinnukonu upp á eldhúsborði. Hann fór inn í herbergi til Palla og þreif hann og litli bróðir sofnaði aftur og Óli fór svo aftur að sofa.
Næsta dag í skólanum spurði kennarinn hvort að einhver hefði getað leyst spurninguna hvað er efnahagslíf. Enginn nemandi gat svarað en þá sagði Óli ég held  að ég skilji þetta.  EFNAHAGSLÍF ER: Á meðan að auðvaldið nauðgar alþýðunni sefur ríkisstjórnin og æskan þarf að þrífa upp skítinn fyrir framtíðina.
Er þetta- ÍSLAND Í DAG?

(Var sent þetta og ákvað að setja inn hér, finnst það eiga vel við).


mbl.is Íslenskir neytendur svartsýnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Svei mér þá ef ég get ekki tekið undir það með þér!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 24.2.2009 kl. 21:58

2 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Þessi var nokkuð góður...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 26.2.2009 kl. 01:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband