Íslendingar bjarga heimsfriðnum!

Búrma heitir það enn þó að Myanmar sé ein birtingarmyndin. Minnir að Myanmar sé Búrma á algengasta tungumáli landsins. Aung Sang Suu Kuy er búin að vera meira og minna í stofufangelsi í 17 ár og stundum við það rýran kost að svelta. Hún er Mahatma Gandhi nútímans og það er sárt að horfa upp á að þetta ástand. Það að Darfur, þjóðarmorðin í Rúanda og viðbjóðurinn í gömlu Júgóslavíu skuli allt enda sem spjall um daginn og veginn hjá öryggisráðinu án aðgerða fyrr en tugir þúsunda saklausra borgara sé látinn er ofar mínum skilning. Ég er ekki alveg að kaupa það að formaður Samfylkingarinnar breyti þessu. Ekki frekar enn að heimsókn hennar til Palestínu hafi haft áhrif á gang mála þar. En hvort Íslendingar eigi erindi í öryggisráðið? Hvað veit ég. Eru ekki allar stofnanir Sameinuðu þjóðanna spilltar málamiðlanir. Svona alþjóðlegur Framsóknarflokkur?
mbl.is Sendimaður SÞ í Búrma ræðir við Suu Kyi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Hólm Bjarnason

Aung Sang Suu Kuy ereinn ötulasti talsmaður friðar og friðsamlegra mótmæla í heiminum í dag og á skilið þann stuðning sem Ísland og íslendingar geta sýnt. Ingibjörg Sólrún ætti kannski að reyna að koma sér í kynni við hana.

Brynjar Hólm Bjarnason, 3.10.2007 kl. 07:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband