Ný fjáröflunarleið....$$$$$

Jamm, það er ekki lengur hægt að selja flísar úr krossi Krists og aflátsbréf. En beinmulningur úr Palla Posti. Rífandi buisness framundan hjá Benna Hmm Hmm. Til sönnunar á áreiðanleika beinanna: „Andrea Codero Lanza di Montezemolo, kardínáli kirkju heilags Páls, segir það hafið yfir allan vafa að þarna væri Páll grafinn.“  En ég hef eina spurningu. Er öruggt að Palli hafi verið kaþóklikki?

En ég samgleðst kaþólskum með þessa nýju fjármögnun. Nóg þurfa þeir nú að borga í skaðabætur fyrir barnaníðingana innan prestastéttarinnar.


mbl.is Leifar Páls postula fundnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sæmundur Ágúst Óskarsson

Eða er alveg víst að Páll gamli hafi nokkurntíma verið til og getur ekki legið þarna alveg eins einhver sakamaður sem þurfti að koma niður.

Sæmundur Ágúst Óskarsson, 28.6.2009 kl. 22:55

2 Smámynd: Fríða Eyland

Af hverju er NOVA auglýsing yfir hálfan textann hjá þér !

Fríða Eyland, 29.6.2009 kl. 14:25

3 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Já góð spurning! Með því að minnka gluggann hjá mér fer hún til hægri en athugasemdaglugginn helst jafnlangur og fer langt útfyrir það sem ég sé. Þetta er forritunarklúður hugsa ég. Vona það allavega.

Ævar Rafn Kjartansson, 29.6.2009 kl. 14:30

4 Smámynd: Fríða Eyland

Gæti verið að Íslendingar hefðu áhuga á aflátsbréfum, ég vil að ríkistjórnin hætti að styrkja trúfélög á krepputímum og um alla eilífð, amen

Fríða Eyland, 29.6.2009 kl. 18:00

5 Smámynd: Villi Asgeirsson

Ég efast stórlega að Palli hafi verið kafólskur, enda ekki búið að finna upp þá stórsnjöllu maskínu þegar hann var styttur.

Villi Asgeirsson, 29.6.2009 kl. 20:38

6 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Villi, ég held meira að segja að Jésús Kristur Guðssson viti ekki að hann sé kafólskur.  Minnir að hann hafi talið sig Gyðing. En Zionistar staðhæfa að hann hafi verið fyrsti Zionistinn.

Sæmundur, það var víst ekki venjan að  sakamenn væru grafnir undir altörum, bara menn sem kirkjan vildi geyma til betri tíma.

Fríða, það eru sennilega um 40 Íslendingar (ef það er í þeim snefill af samvisku) sem hefðu áhuga á aflátsbréfum. Ekki stór markaður en þeir eiga peninga til að borga vel fyrir syndaaflausn. 

Ekki það að hún fæst sennilega ódýrt frá sannleikanefndinni svokölluðu.

Ævar Rafn Kjartansson, 29.6.2009 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.