19.3.2010 | 16:08
Hvað þýða aðgerðir stjórnvalda á mannamáli?
Þær þýða þetta í stuttri samantekt: Þú hefur 15 mánuði til að safna fyrir farinu til Noregs og útvega þér atvinnu! Þe. 3 mánuði vegna frestunar nauðungarsölu og svo 12 mánuði sem þú mátt leigja eignina þína af bankanum! Þetta er í hnotskurn innihald aðgerða þeirra. Og ekkert meir. Það er enginn hvati til staðar til að fólk reyni að halda áfram að borga. Það er eins hægt að fleygja fénu upp í vindinn og sennilega meira gefandi. Hér eru nokkur dæmi um hvað almenningur hefur að segja um aðgerðir ríkisstjórnarinnar:
„Við matarborðið er uppi hávær krafa um að borga þessum aumingjum ekki krónu í viðbót og verja heimilið með vopnavaldi ef þeir voga sér inn á lóðina. Mér sýnist að öfgaöflin á mínu hemili gætu verið að ná yfirhöndinni“
„Ég mun aldrei sætta mig við svona grimmilega refsingu fyrir að greiða lánin mín. Ég hef hins vegar ákveðið það að ég ætla ekki að borga þetta lán eins og það stendur í dag. Það er alveg á tæru. Fari ég ekki að sjá sanngjarnar lausnir fljótlega, fer ég úr landi og byrja upp á nýtt. Síðustu peningana mína hér á landi ætla ég að nota í að rífa húsið mitt. Bankinn mun aldrei fá það.
„Einn ganginn enn nái eignagosarnir að fela sig í skjóli almennings. Hverjir semja annars þessi lög?
„Þessar aðgerðir ef þær koma þá eru þær með hinum íslenska fyrirvara. Ætlaðar fólki sem fædd er á Hlaupársdag þau almanaksár sem ekki er hlaupár.“
„Jafnræði og réttlæti. Hefur einhver séð bóla á þessu ?“
„Það er gott að fleiri eru búnir að reikna út fáránleika hrunsins og eignaupptökuaðgerða ríkisstjórnarinnar og bankanna.“
„Ætlar Skattgrímur að skattleggja þennan einstakling? Einstakling sem rétt svo nær að merja að borga af lánum eftir LEIÐRÉTTINGU“
„Hvers konar skilaboð eru það að senda út til samfélagsins að stjórnvöld munu í öllum tilvikum aðstoða fjármálastofnanir við að arðræna fólk þrátt fyrir sannanlegan landráðarekstur slíkra fyrirtækja á eldri kennitölum?“
„Ef ég skil þetta plott rétt þá hafa þeir tveggja ára frest til þess að ákveða hvort að þeir vilja bankana eða ekki. Það gefur ríkinu/skilanefndunum 2 ár til þess að hámarka arðinn af skuldasafninu (skuldum heimilanna) án þess að þurfa að leggja bönkunum til nýtt fé.“
„Það virðist ekki mega hrófla við þessari verðtryggingu út af lífeyrissjóðunum. Þetta er algjört rugl. Við verðum að afnema þessa vitleysu.“
Heldur vitræna velferðarstjórnin virkileg að þessi hænufet hennar séu til gagns? Eða er það kannski svo að IMF og Parísarklúbburinn stjórni hér í raun?
Ég skora á alla sem þetta lesa að skrá sig hér í stuðningshóp við frumvarp Lilju og áframsenda á vini og kunningja sömu beiðni. Bendi einnig á þessa hópa: Mótmælendur Íslandi, Samtök lánþega, Lántakendur Avant, Lýsingar og SP Fjármögnunar
|
Afskriftir verða skattlagðar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2010 | 11:46
Það fæddist lítil mús!
Ríkisstjórnin hefur nú reist viðbyggingu við gjaldborgina sem hún reisti íslenskum SKULDURUM. Viðbygging þessi er skjólmeiri enda gerð úr loðnari loforðum en þekkst hefur. Samkvæmt upptalningu þessarar norrænu vitrænu velferðarstjórnar ætti enginn að verða úti amk. ekki yfir sumarmánuðina.
Viðbrögðin við þessari rústabjörgunaraðgerð 17 mánuðum of seint hafa ekki látið á sér standa. Og fyrir utan örfáa flokksbundnar hópsálir eru á einn veg. Hér eru nokkur sýnishorn úr athugasemdum við þessa frétt á Eyjunni:
„Var haldin fréttamannafundur fyrir þetta ? þvílík sóun á tíma.“
„Eigum við sem sagt að vera voða voða þakklát fyrir að okkur er gert kleyft að borga lánin sem stökkbreyttust. Ef við ekki borgum er að sjálfsögðu erfiðara að fella niður skuldir auðróna.“
„En ég fæ ekki séð í fljótu bragði að það sé neitt í þessu sem bætir stöðu fólks í samningum við bankana. Kemur einhver auga á eitthvað annað“
„Það fæddist lítil mús“
„Ha? Þetta bætir ekkert, nema kannski að maður fær að búa í húsnæðinu sínu í tólf mánuði eftir gjaldþrot.“
„Krókur á móti bragði: Viðkomandi hættir að borga og safnar lánunum í vasann. Tekur, segjum 6 mánuði að koma honum í þrot. Þá fær hann að búa í 12 mánuði - auðvitað án greiðslu Þá er viðkomandi búin að safna pening í 18 mánuði.“
„Sem sagt - eina sem verður gert er að gera okkur kleyft að borga þessa svívirðu?
Kemur ekki til mála og þvílík smjörklípa - ekki boðlegt.“
„Heyr heyr !!!!!!!!!! Hér er engin sanngirni á ferð. Skuldaðu milljarð og þá færðu skuldafellingu - skuldaðu milljón og þér verður veitt ölmusa svo tryggt sé að þú borgir. Fyrr skal ég láta bera mig út en að borga þessi rán“
„Þetta eru aumasta tilefni fréttamannafundar sem ég hef nokkru sinni séð.“
„Hættum að borga!“
„Þetta eru nú óttalega veiklulega aðgerðir VÆGT til orða tekið. Einn einu sinni er komið með ca svona ca hinsegin lausn sem gerir það að verkum að enginn fær neitt.“
„Hversu lengi ætlar þjóðin að láta bjóða sér svona framkomu?“
„Allt gert, annað en fella niður þá hækkun sem hefur orðið á verðtryggðum lánum fólks!!! Bara aðlögun til að borga LENGUR!!!“
„ÞETTA HEITIR Á ÍSLENSKU VALDNÍÐSLA GAGNVART ALMENNINGI!“
„Svei ykkur sem kennið ykkur við velferð!“
Hægt væri að hafa þessa upptalningu lengri því af nógu er að taka. En ríkisstjórnin vonar að viðbyggingin dugi til að sannfæra kjósendur um að næstu sveitastjórnir landsins eigi að vera skipaðar norrænum vitrænum flokksfélögum sínum. Það sem hún er ekki að ná er að þjóðin er komin með upp í kok á dellunni sem henni er boðið upp á. Smjörklípur eru bara ekki að gera sig lengur.
Ég skora á alla sem þetta lesa að skrá sig hér í stuðningshóp við frumvarp Lilju og áframsenda á vini og kunningja sömu beiðni. Bendi einnig á þessa hópa: Mótmælendur Íslandi, Samtök lánþega, Lántakendur Avant, Lýsingar og SP Fjármögnunar
|
Nauðungarsölu frestað á 552 íbúðum um allt land |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.3.2010 | 15:08
Ísland 2011?
Gefðu þér tíma í þessi tvö myndbönd frá Argentínu. Þetta er að endurtaka sig á Íslandi í dag. Eini munurinn er að valdaklíkurnar hér hafa ekki her. Sem Birni Bjarnasyni þykir víst miður núna.
Myndirnar eru hluti af lengra verki en það kemur sjálfkrafa upp sá möguleiki að smella á næsta hluta.
16.3.2010 | 11:37
Aukning sjálfsvíga og örvæntingar.
Fyrir nokkrum vikum síðan var mér sagt að minnst 26 manns hefðu tekið eigið líf frá áramótum í kjölfar atvinnumissis, uppboða og gjaldþrota. Ég hef enga leið til að sannreyna þessa frásögn enda er þessu haldið frá fólki eins og öðru sem ekki hentar elítunni.
Samt má ætla að fullur þungi áhrifa hrunsins eigi enn eftir að koma fram með enn ömurlegri afleiðingum. Nýjasta útspil félagsmálaráðherralufsunnar er snuð ætlað til vinsældaaukningar og athyglisvert að það komi ekki fram fyrr en eftir að lánasamningar fjármögnunarfyrirtækjanna reyndust ekki standast lög.
Sennilega boðar hann bætta réttarstöðu skuldara húsnæðis eftir að mannréttindadómstóllinn dæmir meðferð bankanna á skuldurum ólöglegar.
Hvet alla til að lesa þessa grein: Bónusar til bankamanna árið 2013??
og skrá sig hér. Þingmenn samþykkið lyklafrumvarpið!
|
Hrina uppboða á Selfossi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
12.3.2010 | 16:45
Þingmenn samþykki lyklafrumvarpið!
Leiðir ríkisstjórnarinnar til að reisa við bankana eru jafn ógeðfelldar og leiðir kaþólsku kirkjunnar vegna skaðabóta fyrir kynferðisglæpi presta gagnvart safnaðarmeðlimum. Kaþólska kirkjan efnir til samskota meðal safnaðarmeðlima. Ríkisstjórnir gefur bönkunum skotleyfi á almenning.
Engu skal eyrt og þeir bankamenn sem standa sig best við að blóðmjólka þjóðina fá feita bónusa þegar sláturtíð lýkur.
Hækkaðar álögur á vín, tóbak og bensín skila engu í ríkiskassann en hækka lánasöfn bankanna og skuldir almennings. Þetta vissu menn fyrir þannig að spurningin er: Var þetta gert til að gera bankanna að fýsilegri eign fyrir erlendu vogunarsjóðina og bankanna sem eiga kröfur á þá?
Lilja Mósesdóttir ásamt fleirum lagði fram frumvarp sem myndi laga samningsstöðu fólks gagnvart lánastofnunum til jafns við það sem gerist á hinum Norðurlöndunum og í Bandaríkjunum. Þetta frumvarp snýst aðallega um það að ekki sé hægt að taka meira en upphaflegt veð sem greiðslu skuldar hvort sem er bíll eða fasteign.
Leikreglur bankanna eru núna þannig að ef þú skuldar 30 milljónir í húsi sem í dag seldist á 20 milljónir bjóða þeir þér 110% leiðina sem er í raun 150-175% leið eða nauðungarsölu. Sem færi þannig fram að bankinn byði 5 milljónir í eignina. Þú skuldaðir áfram bankanum 25 milljónir og bankinn ætti 30 milljón króna eign einnig. Á pappírunum.
Endurreistu bankarnir mótmæla þessu frumvarpi Lilju harðlega og segja það geta haft alvarleg áhrif á eignasafn bankanna. Eru þeir með þessu að segja að eignasafnið byggist á því að viðhalda blóðsogi á þjóðinni til síðasta dropa?
Seðlabankinn sem fær nú ekki háa einkunn hér hefur þetta um málið að segja: „Það kann að vera réttmætt að setja lög með það að markmiði að takmarka hversu langt lánastofnanir geta gengið í því efni að ganga að ævitekjum skuldara sem þeir hafa lánað óvarlega til. Seðlabankinn telur hins vegar að fyrirliggjandi frumvarp geti haft umtalsverð skaðleg efnahagsleg áhrif og feli því ekki í sér heppilega lausn á ofangreindu vandamáli.“
Ég skora á alla sem þetta lesa að skrá sig hér í stuðningshóp við frumvarp Lilju og áframsenda á vini og kunningja sömu beiðni. Bendi einnig á þessa hópa: Mótmælendur Íslandi, Samtök lánþega, Lántakendur Avant, Lýsingar og SP Fjármögnunar
|
Lánin færð yfir á hálfvirði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.3.2010 | 17:05
Er Nígería Norðursins komin til að vera?
Agndofa yfir úrræða- og metnaðarleysi ráðamanna í úrvinnslu á vanda heimilanna og silkihönskum þeirra á sjálftökublóðsugunum hætti ég að tjá mig hér á moggablogginu í ágúst sl. Þegar reiðin er farin að setja svona mikinn svip á það sem maður lætur frá sér er best að hinkra við og bíða þar til lægir.
Og ég beið. Og beið. Og bíð enn. Eftir að ríkisstjórnin sýni skjaldborgina. Atvinnuúrræðin. Að nýtt Ísland sé í uppsiglingu. Að þingið hætti að lítilsvirða kjósendur sína með Icesave og sandkassaati. Menn séu dregnir til ábyrgðar. Að félagsmálaráðherra tilkynni að réttarstaða skuldara verði sú sama og á hinum Norðurlöndunum. Að fólkið í landinu rísi upp í tugþúsundatali og mótmæli því að þrotabúum bankanna sem settu landið á hausinn sé leyft að blóðmjólka almenning fram yfir öll velsæmismörk hins siðaða heims.
Ég er ekki lengur reiður. Ég er öskureiður! Þessi ríkisstjórn haardar eins og fyrri og er í liði með lífeyrissjóðunum, verkalýðshreifingunni sem passar bara sjóðina sína, fjármálastofnunum og liðinu sem kom öllu um koll. Þannig ræður td. félagsmálaráðherra til sín ráðgjafa um skuldavanda heimilanna og bankalausnir. Ráðgjafa sem gerði 230 milljón króna kröfu í þrotabú Landsbankans! Embættismannakerfið er gegnsýrt af flokksgæðinga- og skyldleikaráðningum og virðist ekkert ætla að breytast með nýjum flokkum við völd. Það er til fyrir sig og sína ekki almenning eins og til var stofnað.
Það að blogga hér gerir ekkert fyrir þessa reiði. En ég ætla engu að síður að taka upp þráðinn að nýju þó ekki verði til annars en að vekja athygli fólks á spillingunni sem er enn í gangi í samfélaginu okkar.
|
Sérfræðingar segja að ríkið þurfi að leita til Parísarklúbbsins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
21.8.2009 | 10:59
Arkitekt bankahrunsins
Þessi aðalarkitekt bankahrunsins er sjálfsagt búinn að borga sér milljarða í arðgreiðslur af fyrirtæki sínu Langflugi sem var fjármagnað með sjóðum í eigu tryggingataka Samvinnutrygginga en hann og aðrir útvaldir Framsóknarflokkseigendur hafa nú ekki bara þurrkað upp tugmilljarða sjóði félagsins heldur skuldar félagið yfir 30 milljarða. Fyrir 2 árum síðan stóð til að endurgreiða tryggingartökum 30 milljarða. Þeir eru núna horfnir í hít Finns og félaga. En hann eins og aðrir þátttakendur senda þjóðinni enn puttann og hafa ekkert að afsaka. Ég hef ógeð á þessum siðblindu blóðsugum.
|
Skuldir langt umfram eignir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
18.8.2009 | 16:41
Hryðjuverk banka og ríkisstjórnar
Það er nú gott að heyra að einhver í stjórnarflokkunum sé farinn að skilja að fólk hafi ekki áhuga á að eyða peningunum sínum í hít sem stækkar kannski um tvær milljónir við hverja eina sem það borgar og eignamyndunin verður neikvæðari með hverri greiðslu.
Það þarf ekkert stærðfræðiséní til að skilja þetta þó þetta sé ofar skilningi félagsmálaráðherrafígúrunnar.
Staðreyndir málsins eru einfaldlega þær að launin þín eru í annarri mynt en þú greiðir svo af lánunum þínum með. Þau eru í verðtryggðri mynt en launin í óverðtryggðri. Þetta ógnaróréttlæti er búið að viðgangast hér um áratugi en í 20% verðbólgu með gríðarlegum hækkunum á nauðsynjum og aukinni skattheimtu kemur að því að fólk fái nóg.
Það er heimskulegt að halda tapaðri baráttu áfram. Greiðsluúrræðin sem Kaupþing eru td. að bjóða eru með því heimskulegasta sem hefur verið á borð borið fyrir almenning. En ekki fyrir bankann.
Kaupþing bíður þér greiðsluúrræði á þennan veg: Þú skuldar 27 milljónir í húsi sem kostar í dag 20 milljónir. Til að redda málunum skrifar þú upp á eitt 16 milljón króna bréf til 40 ára, annað 11 millur til 3ja ára og 6 milljón króna tryggingarbréf. Samtals 33 milljónir! Fyrir honum vakir bara eitt. Ef hann getur fengið þig til að þrjóskast við að borga þangað til að fasteignamarkaður og atvinnulíf hafa tekið við sér (þeir miða við 3 ár). Og þú færð að vita þá hvort að bankinn hirði af þér húsið eða þú þurfir að leggja fram 11 milljónir! Snilld! Fyrir bankann.
8.8.2009 | 11:27
Húrra........ eða hvað?
|
Bretar bjóða aðstoð við rannsókn á bankahruni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
7.8.2009 | 21:48
Í boði IMF voru Tamílar upprættir....
En það kostaði stjórnvöld 2,6 milljarða dollara sem Alþjóðlegi gjaldeyrissjóðurinn hefur samþykkt að lána þeim. Ég veit ekki hvort vextirnir séu eins „góðir“ og hjá okkur en á pappírunum heitir þetta „Endurreisn“ landsins eftir átök. Sjá hér og hér. Þessi „Endurreisn“ fól ma. í sér að myrða þúsundir þegna landsins sem bjuggu á átakasvæðunum. En IMF er að „endurreisa“. Rétt eins og hér nema hingað til hafa fáir misst lífið. Bara atvinnuna, húsið sitt og ævisparnað.
Það ætti engum að leynast að starfssemi IMF byggir ekki á góðmennsku eða hjálparhugsjónum. ALLIR stórir bankar alveg eins og blóðsugubankarnir íslensku starfa ekki út frá því að lána og hirða af því vexti eins og flestir halda. Þeir starfa út frá því að BÚA TIL SKULDIR. Þessar skuldir eru ekki bara eign þeirra og ástæða til að geta lánað meira (og þannig búið til meiri skuldir og meiri hagnað) heldur um leið stjórntæki. Með láninu til stjórnvalda í Sri Lanka gerist það sama og hér. IMF hefur ítök og áhrif á allar ákvarðanatökur þeirra sem eru við völd. Áhrif á hvort einkavæða eigi samfélagsþjónustuna (HS veitur-orka). Þessir bankar starfa útfrá því að gera þig sem einstakling eða þjóð að skuldaþræl og sig að áskrifanda tekna þinna. Hér eru útskýringar IMF gagnvart Íslandi.
Hér hefur ekkert breyst. Sömu félagarnir og unnu hlið við hlið í fjármálasukkinu skipa nú skilanefndir og ráðgjafastöður um leið og brennuvargarnir vinir þeirra og góðgerðamenn plotta um framhaldið. Enn eru afkvæmi stjórnmálamanna og vildarvinir flokksins ráðnir í óauglýstar, jafnvel óþarfar möppudýrastöður og látið er eins og allt gangi sinn vanagang meðan fólk er á vergangi og eignaupptakan framundan sé svo hrikaleg að eigi sér ekki hliðstæðu.
Finnist þér þetta óraunhæft bull gefðu þér tíma til að skoða þetta.
height="344">
|
Leiðtogi Tamíla handtekinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)





tharfagreinir
palmig
ingibjorgelsa
einherji
haukurn
jensgud
hafstein
josep
svenni
siggisig
toshiki
dofri
almal
havagogn
harri
andreaolafs
kolgrimur
mosi
bjarnihardar
olinathorv
sigrunb
solir
ragnaro
ottarfelix
lehamzdr
paul
svansson
birgitta
begga
photo
asarich
gullvagninn
helgigunnars
safi
baldurkr
magnusthor
malacai
bergthora
brjann
gattin
brandarar
davidl
fridaeyland
gerdurpalma112
lucas
skulablogg
gunnarwaage
maeglika
skessa
heimssyn
hildurhelgas
himmalingur
gorgeir
hlynurh
regin
fun
jenfo
jogamagg
jax
jon-o-vilhjalmsson
reisubokkristinar
larahanna
mel
mal214
manisvans
omarragnarsson
pallheha
ragnar73
duddi9
siggi-hrellir
sigurjonsigurdsson
stebbifr
must
steinibriem
torfusamtokin
kreppuvaktin
belladis
vefritid
vga
tibet





