Stóriðja eða dauði?

 Grein í Víkurfréttum eftir Atla Gíslason sem allir sem unna landinu þurfa að lesa:

 

"Stóriðja eða dauði ?

Ríkisstjórnin hefur rekið einsleita og metnaðarlausu stóriðjustefna í þágu erlendra álauðhringja. Þessa stefnu vill ríkisstjórnin nú innsigla til framtíðar  með  öfugmælum um þjóðarsátt. Þjóðarsáttin þeirra felst í því að engin stóriðjuáform verði lögð á hilluna. Það þýðir meðal annars að náttúruperlan Þjórsá, gersemar í nágrenni hennar og lönd bænda verða eyðilögð með fyrirhuguðum virkjunum.


Þessi áform kalla á eignarnám og jafnvel afsal á þjóðlendum. Því fer fjarri að eignarnám í þágu fyrirhugaðra virkjana í Þjórsá uppfylli skilyrði stjórnarskrárinnar um almenningsþörf. Það er engin almenningsþörf á því að eyðileggja með óafturkræfum hætti náttúruperlur Þjórsár í þágu mengandi stóriðju, að eyðileggja Hellisheiðina með háspennulínum"

 

Greinin í heild sinni: http://www.vf.is/adsent/numer/30539/default.aspx 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Aldrei í Íslandssögunni hafa verið jafn heimsk stjórnvöld á launaskrá og nú um nokkurt skeið undir forystu frjálshyggjunnar.

Árni Gunnarsson, 30.4.2007 kl. 21:29

2 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Já það sá ég á fundi í Þingborg sl.laugardag. Atli, Björgvin í Samfylkingunni og Ásta hjá Íslandshreyfingunni báru af með málefnalegum og vel rökstuddum svörum. Árni Matt. var bara að henglast þarna. Vissi ekkert og gat engu svarað meðan Bjarni talaði þvert um hug álbræðslunnar sem hann tilheyrir. 

Ævar Rafn Kjartansson, 30.4.2007 kl. 23:09

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Árni M. er góður strákur þegar hann er í góðum félagsskap t.d. að taka lagið í Laufskálarétt. Hann á að vera meira á hestbaki og leggja fyrir sig tamningar, fer bara nokkuð vel á hesti.Sennilega ber hann aldrei sitt barr eftir öll þessi skelfilegu ár í pólitíkinni sem hann auðvitað náði aldrei að fatta.

Árni Gunnarsson, 1.5.2007 kl. 09:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband