Pólitískur rétttrúnaður legrembunnar.

Legrembum landsins hefur vaxið fiskur um hrygg svo úr er orðið óféti sem nagar allt niður sem er ekki samkvæmt nýheilögum fræðum þeirra. Karlmaðurinn er af hinu illa nema hann sé tilfinningaörgeðja mýkingarefni í bleikum bol og sannfærður um kvenvonsku meðbræðra sinna. Og nú hafa jólasveinarnir meira að segja áhyggjur af vonsku manna sem upp til hópa stunda nauðganir og barsmíðar á kvenpeningnum.

Þessi barátta öfgalegrembna hefur ekkert með jafnrétti að gera. Þetta er subbulegur og einstrengingslegur þjösnagangur kvenna sem sjá mannvonskuna í hverju horni. Og ef þær hafa ekki tekið eftir því sjálfar vil ég benda á að JAFNT karlmenn sem kvenmenn eru búnir að fá upp fyrir eyru af þessum öfgafulla sértrúarsöfnuði.


mbl.is Ósáttir við jólakort femínista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll og blessaður Ævar, nú er ég sammála þér. Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 27.12.2007 kl. 00:14

2 Smámynd: Jens Guð

  Er ekki bara ágætt að heyra af og til dálítinn öfgafeminisma?  Annars sofnum við á verðinum í værukærleika. 

Jens Guð, 13.1.2008 kl. 03:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband