Hvenær drepur maður börn?

Fréttaflutningur af ófriðarástandinu í Palestínu hefur verið áberandi í fjölmiðlum sl. ár og ekki að ástæðulausu, þar ríkir  stríðsástand. 2 Þjóðir berjast um yfirráð yfir landi sem báðar telja sitt.  Við höfum horft upp það sama í Júgóslavíu, Norður Írlandi, Suður-Afríku, Víetnam og á fleiri stöðum.

Munurinn á þessu stríði og hinum liggur í gríðarlegum aðstöðumun  þjóðanna í þessarri baráttu. Ísraelski herinn og Mossad leyniþjónustan eru tæknivæddustu og fullkomnustu drápsvélar heimsins í dag dyggilega studdum af bandarískum gyðingum og hergagnaiðnaði enda þeirra bestu viðskiptavinir.  Minnug helfararinnar hefur ísraelskt samfélag lagt allt sitt í það að tryggja öryggi sitt.

Þeir hafa líka lagt ríka áherslu á að halda á lofti minningunni um ofsóknir nasista gagnvart sér og ábyrgð þjóða heimsins í því að líta framhjá þeim á sínum tíma. Sem er alveg rétt því gyðingahatur í Sovétríkjunum sálugu, Bandaríkjunum og fleiri löndum á sér langa sögu.

Þessa kúgun hafa þeir notað sér til að réttlæta sína kúgun á annarri þjóð. Þjóð sem var úthlutað á sínum tíma skv. samþykkt Sameinuðu Þjóðanna jafnmiklu landi og þeim. Landi sem Ísraelar hafa sölsað undir sig, mestmegnis með ólöglegum hætti. Landi sem þeir keppast við að fylla af innflytjendum frá fyrrrverandi austantjaldslöndum og jafnvel þeldökku gyðingum frá Eþópíu sem þeir sjálfir koma fram við sem þriðja flokks þegna. það er allt betra en Palestínumenn.
Þeim hefur tekist að fækka Palestínumönnum í landinu úr 4, 3 milljónum í 600 þúsund á sama tíma og þeir flytja inn á sama svæði alla sem aðhyllast Zionisma, hverrar þjóðar sem viðkomandi tilheyrir.

Fyrrverandi forsætisráðherra þessarar þjóðar Ariel Sharon var eftirlýstur stríðsglæpamaður sem
féll undir sama flokk og Milosevic varðandi glæpi þá sem hann drýgði meðan landið var enn undir stjórn Englendinga. Þessi æðsti yfirmaður þjóðarinnar hafði aldrei sýnt fram á að hann taki pennann fram fyrir byssukúluna. Raunar hafði hann gefið það til kynna að eina framrétta sáttarhöndin væri
sáttarhönd böðulsins. Að byssukúlan leysi vandann var  hans mottó. Hlutföllin hversu margir Palestínumenn fallnir, flestir barnungir,  á móti ísraelum segir ansi margt um valda- og aðstöðumuninn sem þarna er í gangi.

Mynd sem birtist í Mbl. fyrir nokkrum árum sagði allt sem segja þarf um þessi átök. Lítill drengur handtekinn búinn að pissa á sig af hræðslu og þungvopnaðir ísraelskir hermenn, glottandi yfir fengnum. Hann hefur sennilega verið að kasta grjóti. (Verst að geta ekki birt hana hér vegna höfundarréttar).

Gyðingar eiga og  stjórna flestum helstu fréttastöðvum og dagblöðum Bandaríkjanna. Þaðan sýjast fréttaflutningurinn áfram til almennings í öðrum löndum. Gagnrýnislaust taka fjölmiðlar hér  við áróðri gyðinga og matreiða ofan í fjöldann alveg eins og gerðist í valdatíð Adolfs Hitlers þegar gyðingar voru hinum megin borðsins.

Á Norður Írlandi gerðist það oft að  IRA menn skýldu sér á bak við grjótkastandi ungmenni. Það datt engum í hug að það væri réttlætanlegt að hleypa af vélbyssum inn í þvöguna. Raunar er enn verið að fjalla um "Blóðuga sunnudaginn" þar, þegar þetta gerðist. En það var ekki daglegur atburður!
Þegar fjölmiðlar segja að skotið hafi verið "gúmmíkúlum" gæti maður fallið í þá freistingu að halda að um væri að ræða gúmmíkúlur sem gera fólk óvígt en ekki varanlega. Gúmmíkúlur eru bara venjulegar blýbyssukúlur sem hafa verið húðaðar með þunnu lagi af gúmmí. Ekki eins subbulegt og hljómar betur í fjölmiðlum!

Við lifum á herlausu landi í áhættulitlu umhverfi og tilhugsunin um það að barnið okkar komi ekki heim í kvöldmat af því að það hafi verið skotið til bana af velþjálfaðri drápsvél þegar það kastaði steini í hana, er okkur ansi fjarlæg.

En hvenær drepur maður börn?

Ariel Sharon hafði svarið og umheimurinn kyngir því svipbrigðalaust. Palestínumenn eru ekki fólk heldur hundar og og það að drepa afkvæmi þessarra rakka er bara til góða. (Heyrir einhver Heil Hitler?).

Og umheimurinn  klórar sér í rasskinninni, ropar og rekur við og skiptir síðan yfir á skemmtilegri
stöð!

Eru þetta fordómar vestrænna gilda gagnvart aröbum? Eða Múhammeðstrú? Er þetta allt saman pakk sem má missa sig?

Við berum ábyrgð. Þögn okkar er sama og samþykki.
Samþykki fyrir því að það sé í lagi að skjóta börn.
Sum börn.

Ég tek það fram að ég er  ekki gyðingahatari eða nokkuð slíkt. En það voru Íslendingar sem mæltu fyrir stofnun Ísraelsríkis hjá Sameinuðu þjóðunum og þar af leiðandi berum við ábyrgð á þeirra gjörðum. Gjörðum sem þarf að stoppa. Það voru um 6 milljónir gyðinga drepnir í seinni heimstyrjöldinni. Afkomendur þeirra hafa í krafti ofbeldis hrakið nærri 4 milljóna palestínumanna á vergang í flóttamannabúðir til annarra landa og neita að viðurkenna rétt þeirra til að snúa aftur heim. Þetta er glæpur sem viðgengst í skjóli neitunarvalds Bandaríkjanna í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þessu þjóðarmorði verður að ljúka!

Hér fyrir neðan eru nokkrar staðreyndir úr palestínskum raunveruleika teknum af vef ísraelsku mannréttindasamtakanna btselem

Israeli soldiers use Palestinian minors and an adult as human shields in the operation in Nablus

New report uncovers routine ill-treatment of Palestinians in Israel Security Agency interrogations  

dsp_Khalil_al_Mughrabi1 IDF tank fire killed Khalil al-Mughrabi, age 11, and injured two of his friends, ages 10 and 12, while they played soccer in Rafah on July 7th, 2001. Despite internal documents showing the contrary, the IDF said no investigation was warranted.
Photo credit: Family photo

 

 

 

 

 

 

 

dsp_021230_Imran_Abu_Hamdiya December 1, 2002 - 'Imran Abu Hamdia, age 17, who was killed when Border Police officers threw him out of a moving jeep in Hebron on Dec. 30, 2002.
Photo credit: Musa Abu Hashhash, B'Tselem

 

 

 

 

 

 

 

 

dsp_flashette2_SmallEfnið í klasasprengjum sem Ísraelar dreifðu yfir milljón stykkjum af yfir ræktarlönd í Líbanon. Það eru aðallega börn sem verða fyrir tjóni af þeim.

Flechette darts, thousands of which are released when flechette shells explode. Since the beginning of the al-Aqsa intifada, the IDF has used flechettes in the Gaza Strip, killing at least nine Palestinians.
Photo credit: B'Tselem

 

 

 

 

 

dsp_040429_Nidal9 April 29, 2004 - Allah Ahmad Ismail Taher, beaten by Border Police officers on 26 April 2004.
Photo credit: Nidal Kana’ane, B'Tselem

 

 

 

 

 

 

dsp_040916_Jabalya_Mazen Al Majdalawy5564 September 16, 2004 - Mohammad 'Abed Rabbo, who lost his right eye as a result of a gunshot injury.
Photo credit: Mazen Al Majdalawy, B'Tselem

 

 

 

 

 

 

dsp_050509_Hebron (al-Khalil)_Musa Abu Hashhash6889 May 9, 2005 - Rania al-Hilbi, ninth-grade student, from Hebron. On 23 March 2002, an explosive object was thrown into her kitchen from the direction of Beit Hadassah settlement. As a result, she lost her left eye.
Photo credit: Musa Abu Hashhash, B'Tselem

 

 

 

 

 

dsp_murad_Aweise

March 31, 2002 - Murad 'Awaisa, age 17, who was beaten and killed while in detention by IDF soldiers on 31 March 2002.
Photo credit: B'Tselem

 

 

 

 

 

 

 


dsp_031123_Hawara_Checkpoint_EliezerHPIM0369 November 23, 2003 - Two Palestinians who were blindfolded as punishment after they refused to clean up trash around the Huwarra checkpoint as they had been ordered by IDF soldiers.
Photo credit: Eliezer Moav, B'Tselem

 

 

 

 

 

Fatalities

Click on the numbers for a list of individual names and details about the circumstances of their death.

29.9.2000-30.4.2007
Occupied Territories
Israel
Palestinians killed by Israeli security forces
399661
Palestinians killed by Israeli civilians
41 
Israeli civilians killed by Palestinians
236469
Israeli security force personnel killed by Palestinians
22987
Foreign citizens killed by Palestinians
1736
Foreign citizens killed by Israeli security forces
10 
Palestinians killed by Palestinians
317 

 

Additional data (included in previous table)
Occupied Territories
Israel
Palestinian minors killed by Israeli security forces
8242
Israeli minors killed by Palestinians
3980
Palestinians killed during the course of a targeted killing
 
Palestinians who were the object of a targeted killing
210 
Palestinians killed by Palestinians for suspected collaboration with Israel
118 
Palestinians who took part in the hostilities and were killed by Israeli security forces
126453
Palestinians who did not take part in the hostilities and were killed by Israeli security forces ( not including the objects of targeted killings).
19415
Palestinians who were killed by Israeli security forces and it is not known if they were taking part in the hostilities
5813

Notes:

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Bandaríkjamenn eru vinir okkar. á þá vinátta bara að vera á annan veginn?

Þessa spurningu bar Halldór Ásgrímsson upp í ræðustól Alþingis í snarpri umræðu vegna stuðningsins við innrásina í Írak.

Undirlægjuháttur, rökþrot og önnur þau viðbrögð sem íslenskir stjórnmálamenn hafa brugðið fyrir sig til að sanna fyrir okkur vitsmunalega vanburði sína eru orðin svo yfirþyrmandi að mig skortir orð.

Vanmetakennd fulltrúa örþjóðar birtist í aulalegum rembingi þegar hann/þeir taka til máls á erlendri grund. Þá er farið í hlutverk Ketils skræks í Skugga-Sveini.

Annars drep ég þig!, segir fulltrúi BNA. Annars drep ég þig!, bergmálar fulltrúi Íslands hróðugur og mænir upp á húsbóndann í von um bein með kjöttægju.

Hvenær fara erlendir skopteiknarar að birta myndir af íslenskum pólitíkusum á álþjóðaráðstefnum? 

Árni Gunnarsson, 29.5.2007 kl. 07:49

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þetta átti að vera alþjóðaráðstefnum. Hitt getur svo sannarlega gengið líka.

Árni Gunnarsson, 29.5.2007 kl. 07:50

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Þetta eru hræðilegar staðreyndir

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 30.5.2007 kl. 09:50

4 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Ég sá í fyrra í danska sjónvarpinu samtal við ísraelskan lækni sem starfaði meðal Palístínnufólksins.Hann var fyrrum flugmaður í Ísraelska flughernum og hafði verið skotin niður í 6 daga stríðinu og verið fangi arabanna um tíma.Hann sagði að þegar ísraelsku þyrluflugmennirnir væru sendir í árásarferðir á Vesturbankan t.d.til að drepa Hamasleiðtoga í einhverju tilteknu húsi,hefðu þeir skipun um að skjóta á allt"kvikt"sem bærist úr húsunum sem þeir sendu flugskeyti sín á.Sama hvaða líf það væri.Margir flugmennirnir hefðu vilja fá sig fría af þessum skipunum en uppskæru þá brottrekstur eða útskúfun af yfirmannanna og eða félagana.Og í sama þætti var viðtal við einn slíkan,Efir að hafa skotið á það sem seinna kom í ljós var barnahópur þá neitaði hann.Hann var rekinn úr hernum og uppskar útskúfun vina sinna og kunninga.Fyrrgreindur læknir sem missti annan fótinn í 6 daga stríðinu en starfaði nú við að reyna af veikum mætti að hlú að særðum eftir árásir Ísraelshers.Hann var ómyrkur í máli um samlanda sína.Þeir gerðu allt sem hægt var til að tefja fyrir honum og koma í veg fyrir að hann gæti verið til hjálpar þessu fólki.Ég var svo frægur fyrir 18 árum að vera skipstjóri á norsku skipi og við lestuðum appelsínur í Ashdod í Ísrael.Þessar appelsínur voru ræktaðar á Vesturbakkanum og það var EBE með Hollendinga í broddi fylkingar sem voru að koma þessum appelsínum á markað í Evrópu.Ísraelarnir gerðu allt sem þeir gátu til að tefja lestunina og reyna að koma í veg fyrir hana,Þeir stoppuðu bílalestirnar 2svar til 3svar á leiðinni til skips létu afferma bílana til að leita að ímynduðum sprengjum að þeirra sögn.Svo kom upp smá misskilningur vegna hæðar á nokkrum tuga bretta sem lestuð voru undir millidekkið.Hollendingurinn sem stjórnaði lestuninni fékk eftir nokkuð langa bið leyfi til að það kæmu verkamenn af Vesturbakkanum til að lækka á brettunum.Svo var það,að því verki loknu að einn arabinn kom um borð og kíkti niður í lestina,snýr þá ekki lúgumaðurinn sér að honum og hrækir framan í hann.Ég horfði á arburðinn úr brúnni og rauk af stað í vonsku en stillti mig svo og gerði ekkert.Sem betur fer sagði Hollendingurinn seinna er ég sagði honum frá þessu.Þetta hefði getað orðið til að þeir hef'u neitað að klára lestunina.Hann sagði mér margar ljótar sögur af samskiftum sínum við gyðingana.En allt tókst þetta vel að lokum það kom viðtal við mig í Hollenska sjónvarpinu,en þeir fylgstust með lestunni og svo losunni í Dover og Rotterdam,Því að þetta var fyrsti farmurinn af appelsínum af þessum slóðum.Þegar ég kvaddi svo Hollendinginn sagði hann mér að Arafat hefði haft samband við sig og endað samtalið á:And send the captain my best regards"Hollendingurinn sagði við mig að Gyðingarnir væru að leika sama leikin og nasistarnir í stríðinu.Þeir héldu fólkinu í Gettóum.Þetta var fyrir 18 árum og ástandið hefur mikið versnað síðan.Kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 30.5.2007 kl. 23:45

5 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Takk fyrir þetta Ólafur,

Ég hef eftir því sem ég gref lengra fundið sífellt ótrúlegri og ógeðslegri dæmi um framkomu ísraela gagnvart aröbum og þá sérstaklega palestínumönnum.

Einn palestínskan kunningja átti ég fyrir um 25 árum síðan sem var með  sænskan ríkisborgararétt. Hann var handtekinn og dæmdur í fangelsi í ísrael fyrir að þjálfa hryðjuverkamenn. Hann kenndi 11 ára strákum leikfimi við barnaskóla þar.

Mér finnst að við íslendingar berum ábyrgð í þessu máli enda flutningsmenn tillögunnar um stofnun Ísraels við SÞ. 

Ævar Rafn Kjartansson, 31.5.2007 kl. 21:52

6 Smámynd: Linda

Fyrst og fremst, Palestína hefur haldri verið ríki, palestína er svæði,þetta er það fyrsta sem fólk þarf að átta sig á. Sahara eyðimörkinn er svæði.  Palestínu menn eru Jordanar og Arabar sem búa núna á sævði sem er Palestina.  upp úr aldamótum voru á þessu svði fleirri Gyðingar enn Arabara, þeir (arabarnir)litu á þetta svæði sem obyggjanlegt, þarna var ekkert néma mýrar og Malarría.  Ísraelar höfðu keypt upp stóran hluta af því sem er í dag Ísrael fyrir aldamót 1900, Arabar fóru ekki að sína Gyðingum áhuga aftur á svæðinu fyrr enn í kringum 1930.

Arabar eiga ekki trúararf í þessu landi sjá hvað einn af þeirra merkustu færðimönnum sagði um málið circa 1930:

"Muhammad Abu Zayd wrote a book in Egypt in 1930 that was so radical that it was withdrawn from circulation and is no longer even extant. In it, among many other points, he

dismissed the notion of the Prophet's heavenly journey via Jerusalem, claiming that the Qur'anic rendition actually refers to his Hijra from Mecca to Madina; "the more remote mosque" (al-masjid al-aqsa) thus had nothing to do with Jerusalem, but was in fact the mosque in Madina."

"torian Bernard Lewis notes, "there was strong resistance among many theologians and jurists" to the notion of Jerusalem as a holy city. They viewed this as a "Judaizing error—as one more among many attempts by Jewish converts to infiltrate Jewish ideas into Islam." Anti-Jerusalem stalwarts circulated stories to show that the idea of Jerusalem's holiness is a Jewish practice. In the most important of them, a converted Jew named , Ka‘b al-Ahbar, suggested to Caliph ‘Umar that Al-Aqsa Mosque be built by the Dome of the Rock. The caliph responded by accusing him of reversion to his Jewish roots:

‘Umar asked him: "Where do you think we should put the place of prayer?"

"By the [Temple Mount] rock," answered Ka‘b.

By God, Ka‘b," said ‘Umar, "you are following after Judaism. I saw you take off your sandals [following Jewish practice]."

"I wanted to feel the touch of it with my bare feet," said Ka‘b.

"I saw you," said ‘Umar. "But no … Go along! We were not commanded concerning the Rock, but we were commanded concerning the Ka‘ba [in Mecca]."

"Gustav Flaubert of Madame Bovary fame visited in 1850 and found "Ruins everywhere, and everywhere the odor of graves. It seems as if the Lord's curse hovers over the city. The Holy City of three religions is rotting away from boredom, desertion, and neglect." "Hapless are the favorites of heaven," commented Herman Melville in 1857. Mark Twain in 1867 found that Jerusalem "has lost all its ancient grandeur, and is become a pauper village."

 Hér má lesa hvernig sagan dæmir Araba þegar Jerúsalem/Ísrael kemur þar við

það er aldrei rétt að drepa börn enn það er heldur ekki rétt að nota þau til þess að drepa aðra! Réttlæti fellst í því að sjá báðar hliðar málsins.  Ég læt söguna dæma Araba um rétt til Palestínu svæðisins sem er Ísrael.

All weapons must be aimed at the Jews, at the enemies of Allah...whom the Koran describes as monkeys and pigs, worshippers of the calf and idol worshippers. Allah shall make the Moslem rule over the Jew, we will blow them up in Hadera, we will blow them up in Tel Aviv and in Netanya in the righteousness of Allah against this rif-raff.....We will enter Jerusalem as conquerors, and Jaffa as conquerors, and Haifa as conquerors and Ashkelon as conquerors...we bless all those who educate their children to jihad and to Martyrdom, blessing be he who shot a bullet into the head of a Jew.”

— Sermon broadcast on Palestinian Authority television, August 3, 2001

Thanks to Hitler, blessed memory, who on behalf of the Palestinians, revenged in advance, against the most vile criminals on the face of the earth. Although we do have a complaint against him for his revenge on them was not enough.”

— Columnist Ahmad Ragab
Al-Akhbar (Egypt), April 18, 2001

 

Linda, 2.6.2007 kl. 09:45

7 Smámynd: Linda

Sendi ofangreint of fljótt af stað náði ekki að yfirfara það, afsakið innsláttarv.

Vildi bæta þessu við, ef Arabar líta ekki á Paletínu sjálfstætt land og ef þeim er í raun sama um Jerúsalem eins og sagan dæmir þá, hver er þá með óréttlæti á svæðinu? 

First of all this Palestinian land, and all the Arabic nation, is all part of the same area. In the past, there was no independent Palestinian state; there was no independent Jordanian state; and so on. There were regions called Iraq or Egypt, but they were all part of one country....Our main goal is to establish a great Islamic state, be it pan-Arabic or pan-Islamic.”

— Mahmoud A-Zahhar, the leader of Hamas in the Gaza Strip
The Media Line, September 22, 2005

Linda, 2.6.2007 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.